Jæja já það er endalaust langt síðan að ég skrifaði blogg hérna. En eins og þið vitið þá gef ég alltaf upp þá ástæðu að það sé búið að vera mikið að gera hjá mér, það er reynar alltaf satt. En hvað um það ég ætla að skrifa eitthvað skemmtilegt og vonandi finst ykkur lesendum þetta eins skemmtilegt og mér. 

Það er mikið búið að gerast eftir að við skötuhjúin komum frá Minneapolis, sem var by the Way æðisleg ferð, mikið verslað 
( langar aftur út núna strax). En það sem er tórir efst á listanum hjá mér er að ég þurfti enn og aftur eftir 2ára hvíld að lenda á spítala. (semsagt fyrir 2árum lenti ég á spítala og svo aftur núna í oktober)
Það sem átti orsök á því að ég lenti á spítala var lítil tota í malla mínum og kallast botnlangi, en semsagt þá er þetta litla líffæri farið enda er ég léttari, ég var skorin upp og ákveðið að taka það. Ég var ekkert smá hrædd og líka Eyþór, þar sem ég hef aldrei lent í öðru eins. Þvílíkir verkir, svo vondir að ég fékk morfín, not good. En ég verð að hrósa ástinni minni, fyrir frábæra frammistöðu, verð samt að skrifa hvað er mest minnistæðast eftir þessa sjúkrahúsdvöl.
#1 ég að biðja sætan hjúkkugaur að hjálpa mér á klóið, rétt eftir að ég fékk fyrstu morfínsprautuna þrátt fyrir það að Eyþór væri hliðiná mér. 


#2 að beint eftir svæfinguna þegar ég vaknaði þá sagði ég við hjúkkuna á vöknun(herbergið sem maður fer í beint eftir svæfingu), " humm er ég í Target" (fyrir þá sem vita ekki hvað Target er þá er það búð í BNA)


#3 Svo var mjög findið því ég þurfti að hafa hjartalínurit, svo var ég eitthvað að færa mig og það kemur Bíbbbbbbbbbbbbb, eins og þegar fólk er í hjarta stoppi, Eyþór varð endalaust hræddur og kallar MARíA María, þá segi ég við hann "hélstu að ég væri dáin" æ hann er yndislegur.

Ykkur finst þetta kanski ekkert findið en þetta var víst frekar findið, Eyþór stóð sig eins og hetja og er ég endalaust stolt að eiga hann sem kærasta.
Nóg um sjúkrahústal.
Það er búið að vera nóg að gera í skólanum, þið sem eruð í háskóla vitið hvað ég er að meina. Svo er auðvita Vinnan mín, að leiðbeina krökkum frá 1-15 ára segja þeim frá Jesú og þannig lagað.
Svo er það söngskólinn, ég er að fara að syngja á tónleikum á degi íslenskrar tungu í nóvember, þeir sem vilja koma að hlusta er velkomið.
eg nenni ekki að skrifa meir. Nóg af mér í bili, ég ætla að fara að læra aðeins og svo horfa á besta þátt í heimi, Greys anatomy


endilega kvittið í gestó.
love maría langar að biðja ykkur að kíkja á bloggið hans Eyþórs.
Slóðin er:
http://blogg.central.is/skagavalsari